Image

Heildverslun Jóns Ásbjörnssonar hefur verið starfrækt síðan 1993.  Félagið var í upphafi mikið í innflutningi á rekstrarvörum til útgerða og fiskvinnslu s.s. umbúðum,veiðarfærum og beitu.  Jafnframt var útflutningsverslunin umsvifamikil, aðallega í útflutningi á saltfiskafurðum til Spánar og annara Evrópulanda.  Jón Ásbjörnsson er einna þekktastur fyrir áhuga á grásleppuveiðum og vinnslu hrogna og hefur útflutningur á grásleppuhrognum verið stór þáttur í  útflutningnum.  Útflutningur á ferskum fiski í gámum á markaði á meginlandi Evrópu var einnig stór liður í rekstrinum á 10 áratugnum en hefur minnkað mikið síðastliðin ár.

Á árinu 2006 er meginstarfsemi fyrirtækisins útflutningur á saltfiskafurðum og öðrum fiskafurðum til Evrópu auk þess sem útflutningur á grásleppuhrognum er mikill á veiðitímabili grásleppunnar eins og áður segir.  Jafnframt er innflutningur og umboðssala með beitu stór liður í rekstrinum.  En aðaláhersla hefur verið lögð á umboðssölu með beitusíld sem veidd er af frystiskipinu Bjarna Ólafssyni AK-70.  Innflutningur og umboðssala með beitusmokk og beitumakríl (Saury) skipar líka stóran sess í rekstri fyrirtækisins.

Netföng starfsmanna:

    • Jón Ásbjörnsson               Framkvæmdastjóri      Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
    • Ragnar H. Ragnarsson    Skrifstofustjóri            Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Image