Skip to content

Fiskkaup hf

Narrow screen resolution Wide screen resolution Increase font size Decrease font size Default font size default color
Forsíða arrow Framleiðsla
Framleiðsla Prenta Rafpóstur

Fiskkaup hf. er framleiðandi á ferskum kældum flökum,  söltuðum flökum og flöttum fiski og frystum afurðum, aðallega léttsöltuðum flökum fyrir spánarmarkað og flakabitum fyrir verslunarkeðju í Bretlandi.  Höfuðáhersla er lögð á vistvænar veiðar og veiðarfæri og veiða skip félagsins eingöngu með línu fyrir vinnsluna og er áhersla lögð á línuveiddan fisk við framleiðslu afurðanna.

 

Fiskkaup hf. vinnur úr tæplega 4000 tonnum af hráefni á ársgrundvelli, aðallega þorsk og ýsu en jafnframt er lögð áhersla á tegundir eins og löngu, ufsa og keilu.  Rúmlega 70% af því hráefni sem Fiskkaup hf. vinnur úr kemur frá eigin bátum  en 30% er keypt á fiskmörkuðum og viðskiptabátum.

 

Allt innkeypt hráefni er flokkað fyrir vinnslu og tekur öll framleiðslustýring mið af stærð hráefnisins  og gæðum.  Framleiðslan  í þorski mótast af stærð og gæðum þess hráefnis sem keypt er  til vinnslunnar, þannig að smæsti fiskurinn og millifiskurinn í vinnslu á ferskum kældum flökum og frystingu á flökum og flakabitum.  Stærri fiskurinn fer í vinnslu á saltfiskafurðum og líka fryst flök.  Vinnsla á ferskum kældum þorsk -og ýsuflökum  er daglegur þáttur í vinnslunni þar sem pantanir frá kaupendum liggja fyrir í upphafi hverrar vinnuviku og framleiðslupantanir afgreiddar nánast daglega í flug.  Aðrar afurðir s.s. langa, ufsi og keila er yfirleitt saltaðar.

 

Gæðaeftirlit í fyrirtækinu er öflugt þar sem sýni af hráefni og afurðum eru tekin oft á dag og er meðhöndlun metin allt frá því fiskurinn kemur um borð og þar til hann er afhentur kaupanda.   Innra eftirlitskerfi  í samræmi við aðferðafræði HACCP er fylgt eftir í vinnslu og búnaði.  Lögð er áhersla á að viðhalda húsnæði og búnaði í samræmi við reglugerðir og ströngustu kröfur matvælaiðnaðarins.

 

Framleiðslustjóri er Baldvin Ingibergsson   Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 

 

 
IMG_20081108_1039 IMG_20081108_1030 IMG_20081108_1054
  • English