Um Fiskkaup hf
|
|
Fiskkaup hf. Fiskkaup hf. er fjölskyldufyrirtæki og var formlega stofnað 1983 af Jóni Ásbjörnssyni og fjölskyldu. Meginmarkmiðið var að kaupa fisk af bátum og salta eða senda ferskan í gámum til Bretlands til sölu á fiskmörkuðum. Möguleiki á útflutningi hafði þá nýlega opnast og átti Jón frumkvæði að því. Einnig voru send fersk flök með flugi. Um 1988 fékk fyrirtækið fyrst allra leyfi til að selja eigin saltfiskafurðir fram hjá SÍF sem hafði haft einokun fram að því. Leyfið var fyrst takmarkað við saltfiskflök á Spán. Þetta leyfi gaf fyrirtækinu verulegt samkeppnisforskot umfram önnur þar sem mun hærra verð fékkst og tókst að byggja upp mjög góð viðskiptasambönd. Fyrirtækið óx mjög hratt í kjölfar þessa og var komið með útibú í Ólafsvík og Grímsey og meira en 100 manns í vinnu um 1993. Sama ár keypti Fiskkaup hf 2500m2 húsnæði Ríkisskipa við Reykjavíkurhöfn og breytti því í fiskverkun. Vegna minnkandi kvóta og aukinnar samkeppni um hráefnið uppúr 1995 var ákveðið að sameina fiskvinnsluna á einum stað í Reykjavík árið 1996. Starfsfólki var fækkað niður í um 60 manns við það. Félagið hóf útgerð árið 1995 með kaupum á línubátnum Alberti Ólafssyni frá Keflavík. Með útgerðinni varð reksturinn ekki eins háður innlendum fiskmörkuðum um hráefni sem þýddi jafnframt meiri stöðugleika í vinnslunni.Árið 1999 hóf Fiskkkaup hf. Að flaka hluta hráefnisins og senda það ferskt með flugi til verslunarkeðju í Bretlandi. Í þessa vinnslu eru notuð smá flök sem henta síður til vinnslu saltfiskflaka vegna mikils vinnslukostnaðar.Sérstaða fyrirtækisins er að það hefur nánast á einni hendi veiðar, fiskvinnslu og sölu. Fiskkaup hf. og Jón Ásbjörnsson hf. reka sameiginlega skrifstofu.
|